Sjálfsafgreiðsla · Aðgangsstýring · QR/NFC/Bílnúmer

Sjálfsafgreiðsla og aðgangsstýring fyrir nútímaleg tjaldsvæði

Taktu á móti gestum hraðar, seldu meiri þjónustu og hafðu betri stjórn á svæðinu. Lausn Tæknivits sameinar sjálfsafgreiðslu, QR/NFC/Bílnúmera aðgangsstýringu og bakenda sem skráir upplýsingar í rauntíma og birtir, allt í einni heild sem sér um ferlið frá kaupum til opnunar á bómu-, gönguhliðum og þjónusturýmum.

Margar söluleiðir · Sala + aðgangur í sama kerfi · Seldu rafmagn, sturtu, salerni og aðra þjónustu í sjálfsölu

Gestir afgreiða sig sjálfir allan sólarhringinn
Sala á gistingu, rafmagni, salerni, sturtu og fleiru
QR á kvittun eða NFC með farsímaappi
Heildarlausn með bæði hugbúnaði og vélbúnaði
Heildarlausn

Eitt vistkerfi fyrir móttöku, innritun, aðgang og þjónustu

Í stað þess að reka margar aðskildar einingar færðu samræmda lausn sem tengir saman söluleiðir, aðgangsstýringar og bakenda. Gesturinn kaupir, fær heimild og notar þá þjónustu sem hann greiddi fyrir án þess að starfsfólk þurfi að grípa inn í nema í undantekningartilvikum.

Betri þjónusta. Meiri tekjur. Minna álag.

Lausnin er sérstaklega öflug þar sem álag myndast við innkomu gesta, utan afgreiðslutíma eða þegar margir vilja nýta sömu þjónustu á stuttum tíma.

  • Sala á gistinóttum í tjöldum, tjaldvögnum, hjólhýsum, húsbílum eða annarri dvöl
  • Aðgangur að rafmagni, sturtu, salerni og annarri þjónustu
  • Auðkenning með QR-kóða, NFC í farsímaappi eða bílnúmeragreiningu
  • Stýring á bómu-, gönguhliðum og aðgangi að þjónusturýmum
  • Rauntímagögn um sölu, komu gesta og nýtingu á innviðum
  • Gestir geta keypt á vefnum fyrir komu, skráð bílnúmer og keyrt beint inn á svæðið
Bómuhlið við innakstur
Virk heimild opnar bómuhlið við inn- og útakstur. Gestir geta skráð bílnúmer við kaup og keyrt beint inn. Myndavél við bómuhliðið greinir ekki aðeins bílnúmer heldur þjónar einnig sem eftirlitsmyndavél og getur skráð komu og brottför í rauntíma.
Gönguhlið fyrir þjónusturými
Gönguhlið fást sem henta aðgangi að mismunandi þjónusturýmum, með QR-kóða eða NFC. Einnig er eru fáanlegar stýringar fyrir hurðir og annan búnað.
Mandla app með aðgangi fyrir tjaldsvæði
Gestir geta nýtt kvittun með QR kóða eða MANDLA appið með NFC.
Kiosk sem selur þjónustu á tjaldsvæði
Kiosk sem getur selt aðgang að gistingu og staka þjónustu á staðnum.
Ávinningur

Hannað fyrir rekstraraðila sem vilja nútímavæða tjaldsvæðið án þess að flækja reksturinn

Þessi lausn snýst ekki bara um að taka við greiðslu. Hún hjálpar þér að hámarka nýtingu á svæðinu, dreifa álagi, selja meiri þjónustu, stytta bið og halda utan um aðgengi á skipulegan hátt.

Fleiri sölutækifæri

Gestir geta keypt þegar þeim hentar, hvort sem það er við komu, eða áður en þeir mæta á svæðið.

Skýr aðgangsstýring

Heimildir tengjast þeirri þjónustu sem keypt er og opna bara rétta aðganga, til dæmis bómuhlið, sturtu, salerni og rafmagn.

Betri upplifun fyrir gesti

Minni biðraðir, minna vesen og skýrara ferli frá kaupum yfir í notkun á þjónustu.

Minni handvirk vinna

Minnkar álag á starfsfólk og gerir þjónustu og eftirlit auðveldara.

Hentar íslenskum aðstæðum

Utandyra sölustandar og aðgangsbúnaður sem hentar aðstæðum þar sem veður og álag er krefjandi.

Yfirsýn í rauntíma

Sjáðu sölu, komu gesta og notkun á þjónustu á meðan reksturinn er í gangi, ekki bara eftir á.

Dæmisaga

Gestur mætir seint um kvöld — en allt gengur samt snurðulaust

Fjölskylda kemur að tjaldsvæðinu eftir hefðbundinn afgreiðslutíma. Við innganginn notar hún sölustand til að velja tegund gistingar, fjölda gesta, fjölda nátta og kaupa rafmagn.

Að greiðslu lokinni prentar standurinn kvittun með QR kóða og sendir hann í farsíma. Við innakstur skannar gesturinn kóðann og bómuhliðið opnast. Síðar um kvöldið er sami kóði notaður til að komast inn í þjónustuhús og nýta þá þjónustu sem var keypt. Einnig hægt að opna bómuhlið með bílnúmeragreiningu.

Daginn eftir sér rekstraraðilinn í bakendanum hvenær gestirnir komu, hvaða þjónusta seldist og hvernig aðgangarnir voru nýttir.

1
Kaup í sölustandi Gestur velur dvöl og viðbótarþjónustu.
2
QR eða NFC heimild Kvittun með QR eða heimild í appi verður til.
3
Innakstur og aðgangur Bómuhlið og þjónusturými opnast fyrir gildar heimildir.
4
Gögn í bakenda Sala og nýting skrást sjálfkrafa.
Búnaður

Vélbúnaðurinn sem klárar heildarmyndina

Tæknivit býður bæði hugbúnað og þann búnað sem þarf til að láta lausnina virka vel í reynd, frá sölustöndum yfir í bómu- og aðgangshlið.

Stuðlaberg sölustandur

Stuðlaberg sölustandur

Utandyra sölustandur, sem veitir skjól gegn veðri, með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Mulan sölustandur

Mulan sölustandur

Utandyra sölustandur með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Innandyra sölukíósk

Innandyra sölukíósk

Innandyra sölukíósk með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Bómuhlið

Bómuhlið

Stýrist af sama sölukerfi og aðgangsheimildum og heldur utan um skipulegt flæði um svæðið.

Gönguhlið

Gönguhlið og þjónustuaðgangur

Lausnir fyrir salerni, sturtur og önnur þjónusturými, með möguleika á stakri sölu á staðnum.

Bílnúmeragreining

Bílnúmera- og eftirlitsmyndavél

Myndavél, knúin gervigreind, sem nýtist bæði til eftirlits og til að opna hlið sjálfvirkt fyrir gesti með virkan aðgang.

Næstu skref

Viltu taka á móti fleiri gestum með minna álagi og betri stjórn?

Við hjálpum þér að hanna rétta uppsetningu fyrir þitt tjaldsvæði — hvort sem markmiðið er að einfalda innritun eða innleiða fulla sjálfsafgreiðslu með sölustöndum, bómuhliðum, gönguhliðum og app-tengingu.