Snjallar sjálfvirknilausnir sem einfalda þjónustu, sölu og aðgengi

Tæknivit sameinar vélbúnað, hugbúnað og samþættingu við kerfin þín til að setja upp sjálfsafgreiðslu, greiðslur, 
QR/RFID/NFC skönnun, aðgangshlið og snjalla vigtun — frá upphafi til enda með skýru rekstrarflæði og mælanlegum árangri.

​Sveitarfélög ​Sorp og endurvinnsla ​ Sundlaugar ​ Söfn ​ Sjálfsalar ​ Gönguhlið ​ Aksturshlið ​ Nayax posar ​ Bílastæði ​ Bókunarkerfi ​ Tjaldsvæði ​ Bílvogir ​ Vinnuvélavogir ​ Brúarvogir ​ Grenndargámar ​ VENDRAL ​ VITVOG ​ MANDLA

100% sjálfvirkni, engin handavinna

Stafræn umbreyting

Það er ekki mikið mál að kaupa staka sjálfsala, hlið, myndavél eða vog. En raunverulega virðið verður til þegar ferlin verða sjálfvirk og gögnin flæða sjálfkrafa þangað sem þeirra er þörf og að allt vinnur saman í konsert. Lausnir Tæknivits samþætta hágæða vélbúnað við okkar eigin hugbúnað (VITVOG, VENDRAL og MANDLA appið). Niðurstaðan? Tekjur verða meiri, kostnaður minni og gögn skila sér beint inn í bókhaldskerfið þitt, hvort sem það er Business Central, SAP, DK eða eitthvað annað, án þess að nokkur þurfi að snerta lyklaborð og þú getur fylgst með og brugðist við um leið og hlutirnir gerast. 

 


Lausnir fyrir sveitarfélög

Heildstæðar og hagkvæmar lausnir fyrir sorphirðu, móttöku-, grenndar- og endurvinnslustöðvar, sundlaugar og íþróttamannvirki, söfn og menningarmiðstöðvar.

Skoða lausnir fyrir sveitarfélög →

Sjálfsala og afgreiðsla

VENDRAL er sölu-, aðgangs- og upplýsingakerfi sem sér um allt sem gerist á bak við tjöldin í sjálfsölu og -afgreiðslu. Kerfið tengir saman sjálfsala, snjallsala, afhendingarskápa, sölustanda, aðgangshlið, vefverslanir og snjallsímaöpp. 

Skoða VENDRAL →

Umhverfi og úrgangur

Snjallgámar og pressugámar sem fylgjast með fyllingastöðu og tengjast VITVOG fyrir sjálfvirka innheimtu. 
Rauntímaskráning á þyngd og efnisflokkum fyrir námur, malbikunarstöðvar og sorpmóttöku, með brúar- og bílvogum. 

Skoða VITVOG →

Sala og aðgangur

Frá sölu til opnunar á aðgangshliði, göngu- eða aksturshliði, TÆKNIVIT sér um allt ferlið með samræmdum vél- og hugbúnaði, þú þarft ekki að leita annað. Hvort sem þú rekur íþróttaleikvang, sundlaug, líkamsrækt, safn, bílastæði, tjaldsvæði eða leigir út sali, þá höfum við lausn fyrir þig sem leysir málið frá upphafi til enda.

Samstarfsaðilar

Við erum í samstarfi við alþjóðlega leiðandi aðila á okkar kjarnasviðum til að geta boðið viðskiptavinum upp á bestu tækni, reynslu og þekkingu, sem völ er á. Þeirra á meðal eru:

Botek vigtunarlausnir
Sjálfsalar
Paystrax
Tibbo IoT
Gassner

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu upplýsingar um allt það nýjasta sem er á döfinni hjá okkur. 

Nútímavæddu reksturinn þinn í dag!

Við hjá Tæknivit greinum þarfir þínar, útfærum lausn sem hentar þínum rekstri, setjum upp og ávinningurinn skilar sér hratt og vel. Hafðu samband og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.