VITVOG

Hættu að slá inn vigtarnótur handvirkt. Vitvog er íslenskur hugbúnaður frá Tækniviti sem tekur gögn beint úr vogum, gámum og aðgangskerfum og skilar þeim hnökralaust inn í bókhaldskerfið þitt í rauntíma.

Sjá hvernig Vitvog virkar

Hagkvæmt og sjálfvirkt aðgangs- og vogakerfi

Á tímum þar sem kröfur um skilvirka sorpmóttöku og sjálfbæra rekstrarhætti aukast stöðugt, standa sveitarfélög  og fyrirtæki frammi fyrir áskorunum um að hámarka nýtni og rekjanleika. VITVOG, vogakerfi Tæknivits, er hannað til að mæta þessum kröfum með sveigjanlegum lausnum sem nútímavæða ferli við móttöku og vinnslu úrgangs.

Lausn okkar byggir á áralangri reynslu og þekkingu á sviði vigtunar og skráningar, m.a. hjá Sorpu bs og Colas. Hún sameinar okkar hugbúnað og háþróaðan hug- og vélbúnað frá helstu framleiðendum í Evrópu, eins og Botek, Pöttinger, Scanvægt, Gassner, Tamtron, og hugbúnað til að tryggja samfellu, nákvæmni, skilvirkni og auðvelda notkun, hvort sem um er að ræða stórar eða smáar stöðvar.

Skilvirkni og rekjanleiki

Vitvog býður upp á heildstæða lausn sem:

  • Einfaldar vigtunarferli: Stuðningur við ómannaðar vogarbrýr dregur úr starfsmannaþörf og eykur afkastagetu.
  • Bætir rekjanleika: Alhliða skráning og ítarlegar skýrslur veita fullkomna yfirsýn yfir allan úrgang sem fer um stöðina.
  • Tryggir sveigjanleika: Fjölhæf auðkenning viðskiptavina og samþætting við önnur kerfi gerir Vitvog að kjörlausn fyrir fjölbreytta starfsemi.
  • Veitir rauntíma yfirsýn: Öflugt stjórnborð gerir stjórnendum kleift að fylgjast með starfseminni og grípa inn í ef þörf krefur.

Lykil eiginleikar

  • Sjálfvirk og ómönnuð vigtun: Stuðningur við ómannaðar brúarvogir sem stýra bæði inn- og útvigtun, sem dregur úr rekstrarkostnaði og gefur kost á auknum opnunartíma.
  • Fjölbreyttar auðkenningaraðferðir: Styður RFID kort (Mifare), QR kóða, NFC farsímaforrit og númeraplötulestur ökutækja fyrir hraða og hnökralausa afgreiðslu.
  • Samþætting við viðskiptakerfi: Auðvelt að tengja við núverandi viðskiptakerfi (t.d. Microsoft Dynamics 365) fyrir sjálfvirka gagnasöfnun og skýrslugerð.
  • Stýring margra voga: Geta til að stýra með miðlægu stjórnborði mörgum mismunandi vogum samtímis, bæði einstefnu og tvístefnu vogarbrúum, bílvogum, gámavogum o.fl. með miðlægu stjórnborði.
  • Alhliða vélbúnaðarstýring: Tengist og stýrir umferðarljósum, bómuhliðum, myndavélum og stafrænum upplýsingaskiltum til að tryggja öryggi og skilvirkni.
  • Notendavænt snertiskjáviðmót: Einfalt viðmót sem leiðir viðskiptavini í gegnum vigtunarferlið skref fyrir skref.
  • Rauntíma eftirlit og skýrslugerð: Miðlægt stjórnborð með rauntíma yfirsýn yfir vigtanir, auk ítalegra skýrslna sem hægt er að aðlaga að þörfum.
  • Íslensk þróun og stuðningur: Þróað af Tækniviti á Íslandi, sem tryggir skjóta þjónustu, aðlögunarhæfni til framtíðar og persónulegan stuðning.

Gagnaflæði án mannlegra afskipta

Vélbúnaðurinn skráir. (T.d. vörubíll keyrir á brúarvog, eða notandi sturtar í pressugám). Gögn um þyngd, efni og viðskiptavin verða til.

VITVOG vinnur. Gögnin streyma rafrænt í VITVOG sem yfirfer þau, tryggir að þau séu rétt og undirbýr fyrir bókhald. Allt gerist á sekúndubroti.

Bókhaldið uppfærist. Reikningar, fylgiseðlar eða birgðastaða uppfærist sjálfkrafa í kerfum eins og Business Central, DK eða Navision.

Sérsniðin að þínum rekstri

Efnissala & mannvirkjagerð

Fyrir námur, malbikunarstöðvar og steypustöðvar er VITVOG ómissandi. Þegar vörubíll keyrir á Scanvaegt bílavogina er farmskráin (efnisflokkur og þyngd) skráð. Vitvog sér til þess að fylgiseðill fari rafrænt til verkkaupa og reikningur í bókhaldið um leið og bíllinn keyrir af voginni.

Sorpmóttaka & endurvinnslustöðvar

Hnökralaus vigtun og flokkun á úrgangi. Viðskiptavinir (t.d. sorphirðubílar eða verktakar) geta auðkennt sig á sjálfsafgreiðslustöðvum. VITVOG heldur utan um hvaða úrgangsflokkar eru að koma inn eða fara út, reiknar gjöld miðað við gjaldskrár og skilar uppgjöri sjálfkrafa í innheimtuferlið.

Grenndargámar & snjallsorphirða

Í tengslum við djúpgáma og Pöttinger pressugáma safnar VITVOG saman gögnum um notkun. Íbúar eða fyrirtæki auðkenna sig með farsíma (NFC eða QR-kóða) eða RFID kortum. VITVOG fylgist með fyllingarstöðu gáma og rukkar notendur nákvæmlega fyrir þeirra notkun – hvetur til bættrar flokkunar og hringrásar.