Snjallari lausnir fyrir sveitarfélög

Heildstæðar og hagkvæmar lausnir fyrir nútíma þjónustu

Stafræna sveitarfélagið

TÆKNIVIT býður sveitarfélögum heildstæðar og hagkvæmar lausnir fyrir sorphirðu, móttöku-, grenndar- og endurvinnslustöðvar, sundlaugar og íþróttamannvirki, söfn og menningarmiðstöðvar.

Í síbreytilegu umhverfi nútíma sveitarfélaga er krafa um hagkvæman rekstur, framúrskarandi þjónustu og sjálfbærar lausnir sífellt að aukast. TÆKNIVIT hefur áralanga reynslu af því að þróa og innleiða tæknilausnir sem mæta þessum kröfum. Innlend þróun tryggir bestu þekkingu, aðlögunarhæfni og bestun rekstrar.

Við höfum þjónað sveitarfélögum um langt skeið og skiljum því þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir: Stöðugt meiri mannaflsþörf, flókin og úrelt kerfi, aukin krafa um gagnsæi og þörf á að veita íbúum betri þjónustu á hagkvæman hátt.

Lausnir TÆKNIVITS sameina hugbúnað, vélbúnað og samþættingu í einu öflugu kerfi sem einfaldar daglegan rekstur, minnkar kostnað og bætir upplifun íbúa, sem geta nýtt allar þjónustur í gegnum einfalt farsíma app, QR kóða, NFC eða RFID kort.

Helstu kostir

Lausnirnar okkar eru hannaðar til að mæta kröfum nútíma sveitarfélaga

Skýlausn

Einföld og fljótleg innleiðing.

Innlend þróun

Dýpri þekking, tryggir auðveldari aðlögun og samþáttun við önnur kerfi.

Heildarkerfi

Bókanir, áskriftir, inneignir, greiðslur og aðgangsstýring allt í einu kerfi.

Aðgangsmiðlar sem henta

Stuðningur við alla algenga aðgangsmiðla, RFID, NFC, QR, farsímaöpp, SMS, bílnúmer, lífkenni o.fl. 

Sjálfvirknivæðing

Ómönnuð þjónusta þar sem kostur er á tryggir hagkvæmni og gefur kost á lengri opnunartíma.

Reynsla

Fjölmörg sveitarfélög nýta nú þegar lausnir frá okkur.

Lausnir sem virka

TÆKNIVIT hefur þegar sannað gildi sitt hjá fjölda sveitarfélaga um allt land

Einfalda rekstur

Sjálfvirknivæða verkferla og draga úr handavinnu með snjöllum lausnum sem spara tíma og kostnað. handavinnu með snjöllum lausnum sem spara tíma og kostnað.

Auka tekjur

Opna nýjar söluleiðir, lengja þjónustutíma og bæta nýtingu á fjárfestingum með aukinni sjálfvirkni.

Bæta upplifun

Skapa þægilegri og nútímalegri þjónustu fyrir íbúa og gesti.



Veita yfirsýn

Bjóða upp á rauntímagögn og ítarlegar skýrslur fyrir gagnsæjan og upplýstan rekstur.

Sorpmóttöku-, grenndar- og endurvinnslustöðvar

Sjálfvirkar lausnir fyrir skráningu, vogir, aðgangsstýringu og rauntímayfirsýn yfir magn og flæði.

Skoða nánar →

Sundlaugar og íþróttamannvirki

Fjölbreytt aðgangskerfi, áskriftir, klippikort og sjálfvirkar sölulausnir sem bæta þjónustu íbúa.

Skoða nánar →

Söfn og menningarmiðstöðvar

Reynsla með einu mesta sótta safni landsins – miðasala, aðgangsstýring og rauntímayfirsýn í einu kerfi.

Skoða nánar →

Stafræna sveitarfélagið - sviðsmyndir

Sjáum fyrir okkur íbúa nútíma bæjar, sem með korti eða snjalltæki nálgast allar þjónustur sveitarfélagsins á einfaldan og þægilegan hátt.

Skoða nánar →