Snjallt bókunarkerfi – Sjálfvirkni frá A til Ö
Einfaldaðu útleigu á rýmum, tækjum og þjónustu. Með bókunarkerfi VENDRAL rennur allt ferlið saman í eitt: Bókun, greiðsla og aðgangsstýring án aðkomu starfsfólks.
Sveigjanlegt kerfi fyrir flestar þarfir
Rými og salir
Tilvalið fyrir veislusali, íþróttahús, fundarherbergi, sumarhús eða búningsklefa.
Tæki og búnaður
Bókaðu út tölvubúnað, vinnuvélar, hjól, eða önnur verðmæti sem þarfnast tímaskráningar og utanumhalds.
Þjónusta
Haldið utan um tímapantanir fyrir ráðgjöf, einkaþjálfun eða aðra sérfræðiþjónustu.
VENDRAL tengir bókun við vélbúnað
Stafrænt frá byrjun til enda
Það sem aðskilur okkar lausn frá hefðbundnum bókunarkerfum er beina tengingin við aðgangsstýringar VENDRAL. Þegar viðskiptavinur gengur frá bókun og greiðslu á netinu, býr kerfið sjálfkrafa til aðgangsheimild. Þegar bókaður tími rennur upp, fær viðskiptavinurinn aðgang að rýminu eða tækinu. Um leið og tíminn rennur út, lokast fyrir aðganginn. Engir lyklar, engin óþarfa fyrirhöfn, meiri skilvirkni.
NFC og snjallsímar
Snertilaus opnun með síma.
Kvikir QR-kóðar
Kemur í veg fyrir afritun og dreifingu.
RFID lausnir
Armbönd, kort og lyklakippur fyrir fastagesti.
Lífkenni
Fyrir staði sem krefjast fyllsta öryggis (t.d. augnskannar).
Viltu sjálfvirknivæða þína útleigu?
Sparaðu tíma og stórauktu þjónustustig viðskiptavina þinna. Við aðlögum bókunarkerfið nákvæmlega að þínum rekstri.