Fyrirtækið

Snjallari framtíð – Þar sem vélbúnaður og hugbúnaður renna saman í eitt


Senda fyrirspurn

Við erum tæknifyrirtæki sem sérhæfir sig í að brúa bilið á milli hins efnislega heims og stafrænna kerfa. Markmið okkar er að snjallvæða íslenskt samfélag með því að láta upplýsingar flæða sjálfkrafa og hnökralaust frá notanda, í gegnum tækin, og beint inn í bókhald eða upplýsingakerfi rekstraraðila.

Frá stofnun árið 2001 höfum við þróað okkar eigin hugbúnaðarlausnir, svo sem Álfheima, VITVOG, VENDRAL og snjallsímaforritið MANDLA, til að láta hágæða vél- og hugbúnað frá helstu framleiðendum heims virka nákvæmlega eins og íslenskur markaður krefst. Við hönnum og setjum upp lausnir sem lágmarka handavinnu, draga úr rekstrarkostnaði, auka tekjumöguleika og bæta upplifun notenda.

Kjarnasviðin okkar: 

  • Inneigna- og miðakerfi: Miðar, áskriftir, klippikort og alls kyns form inneigna með þeim aðgangsmiðlum sem henta (t.d. QR, RFID og NFC) til að stýra aðgengi í gegnum hlið og hurðir. Frá sölu til opnunar, þú þarft ekki að leita annað. 
  • Umhverfis- og úrgangslausnir: Snjallvæðing á sorphirðu með Pöttinger pressugámum, aðgangsstýrðum grenndargámum og fullkominni rakningu og vigtun í gegnum Falconic og VITVOG.
  • Bílastæði og aðgangsstýringar: Hnökralaus flæðikerfi með LPR bílnúmeragreiningu, bómuhliðum og sjálfsafgreiðsluposum, allt með tengingu við bókhaldskerfið þitt.
  • Vigtunarkerfi í iðnaði: Öflugar brúarvogir, bílvogir og hjólaskófluvogir fyrir námur, malbikunarstöðvar og sorpmóttöku þar sem gögn skila sér sjálfkrafa í reikningagerð.  
  • Sjálfsafgreiðsla: Sjálfsalar, sölustandar, vefsala, snjallsímaforrit eða samþætting við bókunarsíður eða kassakerfi hvort sem þú ert að selja áþreifanlega vöru eða stafræna, t.d. aðgangsmiða eða kort í sundlaugar, söfn, tjaldsvæði, íþróttaleiki o.s.frv. 

Við hjá TÆKNIVITI seljum ekki bara box – við skilum heildarlausnum sem skila ávinningi. 

Staðsetning: Rofabær 9, 110 Reykjavík
Sími: 568 8600
Opnunartími: Virkir dagar frá 9-17

An address must be specified for a map to be embedded