Sjálfvirk aðgangsstýring fyrir salerni

Fullkomin lausn fyrir ferðamannastaði, umferðamiðstöðvar og söluskála. Skilvirk gjaldtaka og örugg stýring sem léttir álagi af starfsfólki og eykur tekjur. Tengt VENDRAL bakendakerfinu okkr fyrir fulla yfirsýn.

Fá nánari upplýsingar

brown rock formation under blue sky during daytime

Reynd lausn fyrir íslenskar aðstæður 

Við hjálpum þér að losna við flókið viðhald og öryggisáhættu sem fylgir reiðufé og gerum um leið upplifun viðskiptavinanna þægilegri. Lausnir Tæknivits byggja á snertilausum greiðslum og stafrænum aðgangi. Kerfið er hannað til að þola mikið álag á fjölförnum stöðum þar sem hraði og áreiðanleiki skipta máli. 

Kerfið tengist beint við VENDRAL, sem þýðir að þú sérð nákvæma sölutölfræði og stöðu tækja í rauntíma í gegnum skýið.

Hurðir eða hlið

Hurðastýringar

Fullkomin lausn fyrir minni aðstöðu eða einstök salerni. Við setjum upp traustan læsingarbúnað og snertilausan posa sem opnar hurðina samstundis að greiðslu lokinni.

Gönguhlið

Fyrir staði þar sem flæði er mikið, s.s. fjölfarna ferðamannastaði eða umferðamiðstöðvar. Hliðin tryggja að aðeins þeir sem greitt hafa fái aðgang og koma í veg fyrir biðraðir.

Salernisferðir innifaldar í pökkum frá ferðaskrifstofu

Ekki aðeins greiðslukort

Auk hefðbundinna kortagreiðslna (VISA/Mastercard) og snjallsímagreiðslna (Apple/Google Pay), býður kerfið upp á einstaka lausn fyrir hópa.

Forgreiddir QR-kóðar

Ferðaskrifstofur og skipafélög geta gefið út eða keypt QR-kóða fyrir sína hópa (t.d. af skemmtiferðaskipum). Leiðsögumaðurinn eða ferðamaðurinn skannar kóðann og fær aðgang án þess að þurfa að greiða á staðnum. Allt er skráð sjálfkrafa í VENDRAL fyrir reikningsuppgjör síðar.

Allt á einum stað í VENDRAL

Með því að tengja salernisaðganginn við VENDRAL færðu mun meira en bara greiðsluvél.

  • Fjarstýring: Opnaðu hlið eða hurðir úr fjarlægð í gegnum vafra eða app.
  • Vöktun: Fáðu tilkynningu ef hlið festist eða ef netsamband rofnar.
  • Skýrslugjöf: Sjáðu hvenær álagið er mest og nýttu gögnin til að skipuleggja þrif og viðhald betur.


Bættu þjónustuna og auktu tekjurnar á sama tíma!

Við bjóðum ráðgjöf og uppsetningu á sjálfvirkum aðgangskerfum um allt land. Hafðu samband og við finnum réttu lausnin fyrir þig.