Lausnir fyrir tjaldsvæði

Sjálfsafgreiðsla og aðgangsstýring fyrir nútímaleg tjaldsvæði

​ Sjálfsafgreiðsla · Aðgangsstýring · QR/NFC/Bílnúmer

Sjálfsafgreiðsla og aðgangsstýring fyrir nútímaleg tjaldsvæði

Taktu á móti gestum hraðar, seldu meiri þjónustu og hafðu betri stjórn á svæðinu. Lausn Tæknivits sameinar sjálfsafgreiðslu, QR/NFC/Bílnúmera aðgangsstýringu og bakenda sem skráir upplýsingar í rauntíma og birtir, allt í einni heild sem sér um ferlið frá kaupum til opnunar á bómu-, gönguhliðum og þjónusturýmum.

Bóka kynningu Sjá dæmisögu

Margar söluleiðir · Sala + aðgangur í sama kerfi · Seldu rafmagn, sturtu, salerni og aðra þjónustu í sjálfsölu


​HEILDARLAUSN

Eitt vistkerfi fyrir móttöku, innritun, aðgang og þjónustu

Í stað þess að reka margar aðskildar einingar færðu samræmda lausn sem tengir saman söluleiðir, aðgangsstýringar og bakenda. Gesturinn kaupir, fær heimild og notar þá þjónustu sem hann greiddi fyrir án þess að starfsfólk þurfi að grípa inn í nema í undantekningartilvikum.

Betri þjónusta. Meiri tekjur. Minna álag.

Lausnin er sérstaklega öflug þar sem álag myndast við innkomu gesta, utan afgreiðslutíma eða þegar margir vilja nýta sömu þjónustu á stuttum tíma.

  • Sala á gistinóttum í tjöldum, tjaldvögnum, hjólhýsum, húsbílum eða annarri dvöl
  • Aðgangur að rafmagni, sturtu, salerni og annarri þjónustu
  • Auðkenning með QR-kóða, NFC í farsímaappi eða bílnúmeragreiningu
  • Stýring á bómu-, gönguhliðum og aðgangi að þjónusturýmum
  • Rauntímagögn um sölu, komu gesta og nýtingu á innviðum
  • Gestir geta keypt á vefnum fyrir komu, skráð bílnúmer og keyrt beint inn á svæðið

Gestir geta nýtt kvittun með QR kóða eða MANDLA appið með NFC.


Virk heimild opnar bómuhlið við inn- og útakstur. Gestir geta skráð bílnúmer við kaup og keyrt beint inn. Myndavél við bómuhliðið greinir ekki aðeins bílnúmer heldur þjónar einnig sem eftirlitsmyndavél og getur skráð komu og brottför í rauntíma.

Gönguhlið fást sem henta aðgangi að mismunandi þjónusturýmum, með QR-kóða eða NFC. Einnig er eru fáanlegar stýringar fyrir hurðir og annan búnað.

Kiosk sem getur selt aðgang að gistingu, staka þjónustu á staðnum og hugsanlega hjá samstarfsaðilum í nágrenninu. 

​ ÁVINNINGUR

Hannað fyrir rekstraraðila sem vilja nútímavæða tjaldsvæðið án þess að flækja reksturinn

Þessi lausn snýst ekki bara um að taka við greiðslu. Hún hjálpar þér að hámarka nýtingu á svæðinu, dreifa álagi, selja meiri þjónustu, stytta bið og halda utan um aðgengi á skipulegan hátt

Fleiri sölutækifæri

Gestir geta keypt þegar þeim hentar, hvort sem það er við komu, eða áður en þeir mæta á svæðið.

Skýr aðgangsstýring

Heimildir tengjast þeirri þjónustu sem keypt er og opna bara rétta aðganga, til dæmis bómuhlið, sturtu, salerni og rafmagn.

Betri upplifun fyrir gesti

Minni biðraðir, minna vesen og skýrara ferli frá kaupum yfir í notkun á þjónustu.

Minni handvirk vinna

Minnkar álag á starfsfólk og gerir þjónustu og eftirlit auðveldara.

Hentar íslenskum aðstæðum

Utandyra sölustandar og aðgangsbúnaður sem hentar aðstæðum þar sem veður og álag er krefjandi.

Yfirsýn í rauntíma

Sjáðu sölu, komu gesta og notkun á þjónustu á meðan reksturinn er í gangi, ekki bara eftir á.

​SJÁLFSALAR - KÍÓSKAR - VEFVERSLANIR - ÖPP

Gestur mætir seint um kvöld — en allt gengur samt snurðulaust

Fjölskylda kemur að tjaldsvæðinu eftir hefðbundinn afgreiðslutíma. Við innganginn notar hún sölustand til að velja tegund gistingar, fjölda gesta, fjölda nátta og kaupa rafmagn.

Að greiðslu lokinni prentar standurinn kvittun með QR kóða og sendir hann í farsíma. Við innakstur skannar gesturinn kóðann og bómuhliðið opnast. Síðar um kvöldið er sami kóði notaður til að komast inn í þjónustuhús og nýta þá þjónustu sem var keypt. Einnig hægt að opna bómuhlið með bílnúmeragreiningu.

Daginn eftir sér rekstraraðilinn í bakendanum hvenær gestirnir komu, hvaða þjónusta seldist og hvernig aðgangarnir voru nýttir.

​

Kaup í sölustandi

Gestur velur dvöl og viðbótarþjónustu.

​

QR eða NFC heimild

Kvittun með QR eða heimild í appi verður til.

​

Innakstur og aðgangur

Bómuhlið og þjónusturými opnast fyrir gildar heimildir.

​

Gögn í bakenda

Sala og nýting skrást sjálfkrafa.

​VÉLBÚNAÐUR

Vélbúnaðurinn sem klárar heildarmyndina

Tæknivit býður bæði hugbúnað og þann vélbúnað sem þarf til að láta lausnina virka vel í reynd, frá sölustöndum, sjálfsölum, yfir í hurðastýringar,  bómu- og aðgangshlið. Við röðum saman hentugustu lausninni fyrir þig

Stuðlaberg sölustandur

Utandyra sölustandur, sem veitir skjól gegn veðri, með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Mulan sölustandur

Utandyra sölustandur með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Innandyra sölukíósk

Innandyra sölukíósk með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Bómuhlið

Utandyra sölustandur, sem veitir skjól gegn veðri, með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Gönguhlið og þjónustuaðgangur

Utandyra sölustandur með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

Bílnúmera- og eftirlitsmyndavél

Innandyra sölukíósk með snertiskjá, posa og prentara sem skilar kvittun með QR kóða og stafrænum aðgangsheimildum í snjallsíma, SMS eða tölvupósti.

​NÆSTU SKREF

Viltu taka á móti fleiri gestum með minna álagi og betri stjórn?

Við hjálpum þér að hanna rétta uppsetningu fyrir þitt tjaldsvæði — hvort sem markmiðið er að einfalda innritun eða innleiða fulla sjálfsafgreiðslu með sölustöndum, bómuhliðum, gönguhliðum og app-tengingu.


Fá ráðgjöf​​ Sjá nánar um bakendakerfi