Einfaldaðu greiðslurnar 

Auktu tekjurnar og lækkaðu rekstrarkostnaðinn með Nayax

Fá ráðgjöf

Nayax - Leiðtoginn í greiðslulausnum fyrir sjálfsölu


Nayax er eitt af öflugustu fyrirtækjum heims í greiðslulausnum. Hver kannast ekki við Nayax posana sem vel flestir sjálfsalar landsins skarta. Tæknivit ehf. er umboðsaðili Nayax hér á landi og þjónustar í dag

stórum flota af posum sem finnast á allskyns sjálfsafgreiðslulausnum útum allt Ísland. 

Reynsla sem telur

Í heimi sjálfsafgreiðslu er rekstraröryggi allt. Tæknivit býður heildarlausnir frá Nayax sem gera fyrirtækjum kleift að taka á móti greiðslum hvar og hvenær sem er. Hvort sem um er að ræða snertilausar greiðslur, debet/kreditkort eða farsímagreiðslur, þá brúa okkar lausnir bilið á milli sölustaðar og kaupanda á fljótlegan og öruggan hátt.

VPOS Touch – Allt-í-einni lausn

VPOS Touch er flaggskipið okkar. Þetta er öflugur og glæsilegur posi með snertiskjá í lit sem styður allar gerðir greiðslna: snertilaus kort, chip, swipe og farsímagreiðslur (Apple/Google Pay). 

Helstu kostir: Innbyggt raddleiðbeiningarkerfi, rauntíma vöktun og gagnvirkt viðmót sem eykur sölu og bætir upplifun viðskiptavina.

Onyx – Fyrirferðalítill og snjall


Onyx er hannaður fyrir þá sem vilja hámarks skilvirkni í lágmarks plássi. Hann er sérhæfður fyrir snertilausar greiðslur og hentar fullkomlega á minni tæki, þvottavélar eða sjálfsala þar sem hönnun og pláss skiptir máli.

Helstu kostir: Ótrúlega endingargóður, fljótur að tengjast og sýnir dýnamíska QR-kóða fyrir vildarkerfi eða greiðslur.


Nova Market – Sjálfsafgreiðsla á næsta stig  

Nova Market er lausnin fyrir svokallaða „Micro-markets“ eða starfsmannakaffistofur þar sem traust og hraði skiptir máli. Þetta er fullkomin sjálfsafgreiðslustöð sem gerir starfsmönnum eða viðskiptavinum kleift að skanna vörur og borga á einum stað án biðraðar. 

Helstu kostir: Einfalt viðmót, auðvelt í uppsetningu og tengist beint við birgðakerfi Nayax.

Nova Kiosk – Söluturninn þinn


Nova Kiosk er hannaður fyrir staði með mikið flæði fólks, s.s. íþróttahús, söfn eða skemmtigarða. Þetta er stór og öflugur standur sem hentar vel fyrir miðasölu eða pantanir á mat og drykk.

Helstu kostir: Stór snertiskjár, harðgerð hönnun og fullkomin samþætting við aðgangsstýringarkerfi á borð við Álfheima.

Fullkomin stjórn í vasanum

Allir Nayax posar tengjast öflugu bakvinnslukerfi þar sem þú getur vakað yfir sölu, birgðum og stöðu tækja í rauntíma í gegnum vafra eða MoMa appið.

Rauntímaskýrslur

Sjáðu söluna um leið og hún á sér stað.

Viðvaranir

Fáðu tilkynningu ef tæki dettur út eða ef birgðir klárast.

Farsímastýring

Breyttu verðum eða fylgstu með stöðu tækja í símanum.

Einfaldaðu greiðslumiðlunina þína í dag

Ertu ekki viss hvaða Nayax tæki hentar þér? Sérfræðingar okkar hjálpa þér að finna réttu samsetninguna sem hámarkar söluna og lágmarkar viðhaldið.