Álfheimar – Miðpunkturinn í þinni þjónustustýringu

Heildarlausn fyrir miðasölu, inneignir og aðgangsstýringu, sem brúar bilið á milli hugbúnaðar og vélbúnaðar.  Samþáttað við mismunandi bókunar- og sölukerfi og aðgangsstýringum.  Íslensk lausn, framleidd af Tækniviti, sem gerir okkur kleift að vera sveigjanlegri til að mæta ítrustu sérkröfum.  Einfaldaðu reksturinn, bættu upplifun viðskiptavina og fáðu fulla yfirsýn á einum stað.

Bóka kynningu

Snjallt miða- og inneignakerfi

Álfheimar er öflugt bakvinnslukerfi sem hannað er til að halda utan um hvers kyns rafrænar vörur og aðgangsréttindi. Hvort sem um er að ræða einstaka miða á íþróttaleiki,  tímabils- eða klippikort í sundlaugar, aðgangsmiða á söfn, sorpkvóta fyrir sveitarfélög eða starfsmannakort, þá tryggir kerfið örugga og nákvæma aðgangsstýringu.

Kerfið sér ekki aðeins um útgáfu og umsýslu fyrir RFID-kort og snjallsímaapp með NFC eða QR-kóða,  heldur virkar það einnig sem fullkomið sölukerfi þar sem hægt er að setja upp viðburði og selja í gegnum allar nútíma söluleiðir.

Sundlaugin

Sveigjanleiki í fyrirrúmi

Fjölbreyttir miðar

Tímabilskort, stakir miðar, klippikort og gjafakort í einu kerfi.

Sorpkvótar

Fullkomið utanumhald um losun og magn fyrir endurvinnslustöðvar.

Aðgangsmiðlar sem henta

Snjallsímaöpp með NFC, QR-kóða, RFID-kort, bílnúmeragreiningu og lífkenni. 

Aðgangsstýring

API sem stýrir hliðum, bómum og hurðum í rauntíma.


Skýbundið kerfi

Tyrggir hraðari innleiðingu og hagkvæmari rekstur. 

Opið API 

Auðveld tenging við ERP-kerfi, netverslanir, kassakerfi, sjálfsala og önnur utanaðkomandi sölukerfi.

Mandla appið

Samþætting við okkar eigin snjallsímalausn. Hægt að útbúa undir þínum merkjum. 

Heildarlausn

Frá hugbúnaði alla leið út í hlið.  Við útvegum bæði hugbúnaðinn og allan vélbúnaðinn.

Áratuga reynsla

Álfheimar eru í notkun hjá földa sveitarfélaga og fyrirtækja um land allt. Söfn og ferðamannastaðir, sundlaugar, íþróttamannvirki og sorphirðustöðvar eru dæmi um aðila sem nota kerfið til að halda utan um sölu og aðgangsstýringu.  

Með Álfheimum færðu þess til að stýra vélbúnaði beint. Með forritunarskilum (API) fyrir  aðgangsstýringar getur kerfið opnað snúningshlið, lyft vegabómum eða gefið aðgang að sorpgámum og búningsklefum.

Tæknivit útvegar jafnframt allan vélbúnaðinn, sem þýðir að þú færð einn samstarfsaðila sem ber ábyrgð á öllu ferlinu – frá því að miðinn er keyptur þar til gesturinn gengur inn.

Viltu nútímavæða þína þjónustu? 

Hafðu samband og við sýnum þér hvernig Álfheimar geta einfaldað þinn rekstur.