Starfsmenn


Magnús Þór Karlsson
Framkvæmdastjóri

Magnús stofnaði Tæknivit 2001. Hann er véltæknifræðingur frá Odense Teknikum í Danmörku en sótti í náminu greinar frá rafmagnsdeild skólans. Magnús hefur á starfsferli sínum aðallega unnið að upplýsingaverkefnum. Hann stofnaði Hug sf 1985.

Í frítíma sínum hefur hann starfað með Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík og Jöklarannsóknafélaginu.

Netfang: magnus@taeknivit.is

Dagbjört Lára Helgadóttir
Bókari

Dagbjört hóf störf hjá Tæknivit í janúar 2020. Hún er viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík.

Dagbjört starfaði áður um langt skeið sem skrifstofustjóri í Vefnaðarvöruversluninni Virku, þar sem hún hélt utan um starfsmannamál, innflutning, bókhaldið og kom að flestu því sem viðkom rekstrinum.

Netfang: dagbjort@taeknivit.is

.

Þrándur Jensson
Rafvirkjameistari 

Þrándur, rafvirki og kvikmyndafræðingur með meiru sér um framleiðslu, uppsetningu og þjónustu á hinum margvíslega búnaði sem úr smiðju Tæknivits kemur.

Utan vinnutíma á stuttmyndagerð hug hans allan.

Netfang: thrandur@taeknivit.is

Hallbjörn Magnússon
Rekstrar- og verkefnastjóri

Hallbjörn a.k.a Halli hefur lengi verið viðloðandi Tæknivit og hefur starfað hjá fyrirtækinu með hléum frá árinu 2006.

Árin 2019 til 2023 starfaði Halli sem leiðsögumaður og ferðaðist um landið þvert og endilangt með náttúruþyrsta ferðalanga.

Netfang: halli@taeknivit.is

Kjartan Már Másson
Sölustjóri

Kjartan hefur víðtæka reynslu og þekkingu af sölu og markaðsmálum.


Kjartan er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur einnig lokið  dipl í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands ásamt dipl. í markaðs og útflutningsfræði.


Í frítímanum hleypur hann eða hjólar á skemmtilegu slóðum sem finnast allt í kringum höfuðborgarsvæðið.

Netfang: kjartan@taeknivit.is

 

Katrín María Magnúsdóttir
Grafískur hönnuður

Katrín María hóf störf hjá Tæknivit í byrjun árs 2024, eftir að hafa tekið að sér verkefni af og til fyrir Tæknivit í nokkur ár.

Katrín María er menntaður margmiðlunarhönnuður frá KEA Copenhagen School of Design and Technology en hún stundar nú nám við The Danish School of Journalism, Grafísk hönnun samhliða störfum sínum fyrir Tæknivit.

Netfang: katrinmaria@taeknivit.is

Trausti Þór Jóhannsson
Hugbúnaðarsérfræðingur

Frá unga aldri hefur Trausti haft það sem takmark að breyta tölvum úr vandræða gripum yfir í nothæf tæki sem aðstoða fólk. Trausta finnst fátt eitt skemmtilegra en að búa til hugbúnað og leysa vandamál.


Þegar Trausti er ekki að vinna fyrir framan tölvu eða spila leiki, þá finnst hann aðallega í eldhúsinu eða fyrir framan grillið. Góður matur og með því er klárlega áhugamál númer 2 hjá honum.

Netfang: trausti@taeknivit.is