Snjallar aðgangsstýringar fyrir sturtur

Komdu í veg fyrir vatnssóun og gerðu gjaldtöku sjálfvirka. Vatnsheldir lesarar og snertilausar greiðslur eða forgreiddir QR-kóða miðar, sem henta fullkomlega fyrir tjaldsvæði, sundlaugar, fjallaskála og aðra ferðamannastaði. Allt tengt við VENDRAL með rauntíma eftirlit og stjórnun.

Fá tilboð í sturtustýringar

Betri þjónusta og meiri tekjur

Ferðamenn í dag vilja hvorki standa í biðröð eftir skiptimynt né vesenast með sérstaka mynt. Með sturtulausnum Tæknivits geta gestir einfaldlega lagt greiðslukort, snjallsíma (Apple/Google Pay) eða forgreiddan QR-kóða að lesara til að opna fyrir vatnið. Þetta skapar betri upplifun fyrir gestinn og lágmarkar vinnuna fyrir þig. 

​

Fyrir krefjandi aðstæður

Við notum sérstaklega hannaða, vatnshelda og höggþolna (IP55) posa, NFC og QR lesara sem þola raka og krefjandi aðstæður inni í eða við sturtuklefana. Getur virkað án netsambands. 

​

Segullokastýring

Búnaðurinn opnar og lokar fyrir vatnsflæði með segulloka í nákvæmlega þann tíma sem greitt var fyrir.

​

Tímastýring

Viðskiptavinurinn kaupir sér ákveðinn sturtutíma (t.d. 3 eða 5 mínútur). Ljós eða skjár á lesaranum gefur til kynna hversu mikill tími er eftir. Hægt að útfæra þannig að gjaldfært er fyrir aukamínútur.

Auðvelt aðgengi allra

Kerfið styður meira en bara greiðslukort.

  • Ferðaskrifstofur: Geta prentað út eða sent rafræna QR-kóða á sína hópa sem gilda fyrir ákveðinn fjölda af sturtuferðum.
  • Fastagestir og starfsfólk: Geta notað MÖNDLU appið eða RFID kort/armbönd/lyklakippur til að fá aðgang, sem skráist sjálfkrafa á þeirra reikning.




VENDRAL: Full stjórn á dropanum

Hjartað í lausninni er sölu-, aðgangs- og upplýsingakerfið, VENDRAL (áður Álfheimar) byggt á íslensku hugviti, með fjölbreytta möguleika. Allir sturtulesarar geta verið tengdir við VENDRAL, sem gefur rekstraraðilum góða yfirsýn og stjórn: 

  • Miðlæg breyting á verðum og stillingum
  • Upplýsingar um veltu og notkun
  • Sjálfsala - viðskiptavinurinn afgreiðir sig sjálfur
  • Forprentaðir miðar/kort
  • Einskiptis-, margskiptis-, tímabils- miðar og kort
  • Endursala: Leyfðu öðrum að selja aðgang að þjónustunni þinni



Eru þið tilbúin að spara heita vatnið og auka tekjurnar?

Láttu sérfræðinga TÆKNIVITS aðstoða YKKUR við að hanna sturtukerfi sem hentar þínum rekstri.