Snjöll aksturshlið – Örugg stýring á umferð

Vönduð hlið frá Nice og Gater fyrir bílastæði, tjaldsvæði, sumarbústaðalönd, iðnaðarsvæði og fjölbýlishús. Fáanleg sem stök eða fullkomlega samþætt við greiðslu- og aðgangsstýringalausnir TÆKNIVITS.

Fá ráðgjöf um hlið

​

Hraði og afköst

Hannað fyrir mikla notkun. Bómurnar opnast hratt og örugglega (allt niður í 1,5 sekúndur) sem lágmarkar biðraðir og flýtir umferðarflæði á álagstímum.

​

Öryggið í fyrirrúmi

Innbyggðir skynjarar og hindranagreining tryggja að bóman fer aftur upp ef eitthvað verður á vegi hennar, sem kemur í veg fyrir slys á fólki eða tjón á ökutækjum.

​

Sveigjanleiki

Við bjóðum bómur af öllum stærðum, eða allt frá 3 metrum fyrir lítil einkastæði upp í 9 metra langar bómur fyrir breið innkeyrsluhlið og iðnaðarsvæði.

Meira en bara hlið – Algjör stjórn með VENDRAL

Galdurinn við lausnir TÆKNIVITS er samþættingin. Þótt bómuhliðin frá Nice og Gater virki fullkomlega ein og sér með fjarstýringum, þá margfaldast notagildið þegar þau eru tengd við sölu-, aðgangs- og upplýsingakerfið okkar VENDRAL:

  • Sölukerfi: Breyttu bílastæðinu í tekjulind með því að tengja hliðið við snertilausan Nayax posa fyrir gesti.
  • MANDLA appið okkar eða Google/Apple veski með QR-kóða eða NFC: Leyfðu starfsfólki, íbúum og áskrifendum að opna hliðið með því einu að leggja símann að lesara.
  • Skynjarar og myndavélar: Hægt að tengja við kerfi sem lesa bílnúmer eða opna sjálfkrafa fyrir bílum á útleið. 


Vantar þig trausta lausn fyrir þitt svæði?

Sérfræðingar Tæknivits aðstoða þig við val á rétta vélbúnaðinum, sjá um uppsetningu og tryggja áreiðanlega þjónustu til framtíðar.