Snjallar sorphirðulausnir frá Pöttinger – Fyrir hringrásarhagkerfið

Tæknivit býður háþróaðar sorphirðulausnir frá Pöttinger sem breyta úrgangi í hráefni. Pressugámar, djúpgámar og sérhæfður búnaður fyrir lífrænan úrgang, fullkomlega samþætt íslenskum innviðum, sem uppfylla skilakröfur UOS.is um tilurð sorps allt frá fyrsta notanda til lokameðhöndlunar.


Fá nánari upplýsingar og ráðgjöf

Úrgangur er hráefni – Pöttinger One World

Pöttinger One World er leiðandi á heimsvísu í þróun og framleiðslu á hágæða búnaði til úrgangsmeðhöndlunar. Við hjá Tækniviti bjóðum þessar lausnir sem hornstein að hringrásarhagkerfinu á Íslandi. Við lítum svo á að úrgangur geti verið dýrmætt hráefni og okkar lausnir tryggja að gæði hringrásarinnar séu hámarkaðar. Í lausnum Pöttinger er hugsað fyrir öllu, m.a. hvað varðar fyllsta öryggi, brunavarnir og notandavænt viðmót, til að tryggja áreiðanlegan rekstur.  

Kjarnalausnir – Úrval fyrir allar þarfir

Pressugámar

Öflug mismunandi pressukerfi sem lágmarka rúmmál úrgangs, spara flutningskostnað og auka skilvirkni á sorphirðustöðum eða við fyrirtæki.

Djúpgámar

Snyrtileg, lyktarlaus og plásssparandi lausn fyrir grenndargáma eða sjálfsafgreiðslugáma, þar sem megin hluti gámsins er falinn neðanjarðar.

Lífrænn úrgangur

Sértækar lausnir fyrir söfnun og meðhöndlun lífræns úrgangs, hannaðar til að auðvelda vinnslu á moltu og framleiðslu á metangasi.

Sérlausnir og öryggi

Frá brunavörnum yfir í sérsniðinn búnað, tryggjum við að lausnirnar mæti ítrustu gæða- og öryggiskröfum þíns reksturs.

Falconic: Haltu utan um hagræðinguna

Gámarnir frá Pöttinger eru búnir Falconic stýrieiningunni, hjartað í hinni stafrænu sorphirðu sem skilar sér í beinum sparnaði í flutningum, áætlanagerð og viðhaldi.

Rauntímavöktun og GPS

Hvar er gámurinn og hversu fullur er hann? Falconic sýnir nákvæma GPS staðsetningu á vefviðmóti og sendir sjálfvirkar SMS eða tölvupóststilkynningar (t.d. þegar gámurinn er 50% til 100% fullur). Þetta kemur í veg fyrir þörfina á handvirku eftirliti.

Snjallari flutningar

Með því að vita nákvæmlega hvenær gámar fyllast er hægt að gjörbreyta áætlanagerð. Þú fækkar ónauðsynlegum losunarferðum, styttir viðbragðstíma, lágmarkar CO2 fótsporið og sparar verulegan flutningskostnað.

Fjarstýring og fyrirbyggjandi viðhald

Stjórnaðu vélbúnaðinum í gegnum tölvu eða snjallsíma. Þú getur breytt pressustillingum eftir tegund úrgangs, lesið af villumeldingum og innleitt fyrirbyggjandi viðhald. Ef gámur er færður eða skipt út, sækir nýi gámurinn sjálfkrafa réttar stillingar fyrir þá staðsetningu í gegnum netið.

Sjálfsafgreiðsla og hnökralaus gögn með Tæknivit

Samþáttunin getur skipt sköpun

Þótt Pöttinger bjóði upp á sinn eiginn öfluga Falconic hugbúnað fyrir vöktun og rekstur, þá liggur okkar sérstaða í því að tengja lausnirnar þeirra beint við íslenska innviði.

  • VITVOG og bókhaldið:  Gögnin streyma úr vigtarbúnaði gámanna, í gegnum Vitvog, og beint inn í helstu bókhaldskerfi á íslenskum markaði. Áratuga reynsla okkar gerir þessa samþættingu áreynslulausa og þægilega.
  • MANDLA appið: Notendur á sjálfsafgreiðslustöðvum geta notað NFC eða QR-kóða til að auðkenna sig, skrá tegund úrgangs, keypt kvóta og haldið utan um stöðu sína.

... að falla inn í umhverfið 

Fela eða gera að aðalatriði? Þú hefur valið. Eftir því hver notkunin er eða staðsetningin, þá getur PÖTTINGER gámurinn þinn ekki aðeins fallið inn í umhverfið heldur einnig haft þau sjónrænu áhrif sem þú vilt. 

Hönnunarfrelsi 

CamoDesign gefur þér frelsi til að útfæra útlit gámana þannig að þeir hafi hreinlegt útlit - allan líftíma þeirra. Þannig birtist ekki aðeins hreint umhverfi í notkun þeirra heldur einnig í útlitinu. 

Hvernig sem þú ákveður: Gittex gerir gáminn þinn að einstökum hlut. Hvort sem um er að ræða grafísk mynstur eða ljósmyndir, er auðvelt að uppfylla hverja hönnunarkröfu. Því pressugámur þarf ekki að vera blettur í landslaginu.

Reynsla Tæknivits skiptir sköpum

Við hjá Tækniviti höfum áratuga reynslu af sölu, uppsetningu og þjónustu á sorphirðubúnaði á Íslandi. Við skiljum kröfurnar um endingu og öryggi í krefjandi vinnuumhverfi. Við bjóðum þér trausta ráðgjöf til að hanna réttu sorphirðu- eða grenndarstöðina, þar sem öryggi og skilvirkni eru í fyrirrúmi.

 

Kominn tími á nútímavæðingu? 

Hafðu samband og sérfræðingar okkar teikna upp sjálfvirka, nákvæma og örugga sorphirðulausn sem passar fyrir þinn rekstur.