Stafræna sveitarfélagið þitt

Uppgötvaðu hvernig MANDLA, appið okkar, sem knúið er af VENDRAL, sölu-, aðgangs- og upplýsingakerfi TÆKNIVITS, umbreytir daglegu lífi í sveitarfélaginu í hnökralausa og þægilega upplifun á sama tíma og reksturinn verður skilvirkari. Þú getur notað það alls staðar þar sem hafa þarf umsjón með aðgengi, auðkenningu, sölu á þjónustu og greiðslum.

Skoðum hér nokkrar sviðsmyndir:


​ Velur sundkortið þitt
Velur sundkortið þitt í appinu. ​

Aðgangshliðið les QR-kóðann
Sýnir skjá símans þíns með QR-kóða kortsins við aðgangshliðið.

Byrjaðu daginn á hressandi sundferð

Með MÖNDLU appinu getur þú keypt einstaka miða, áskrift eða fjölskyldumiða. Inneignin er geymd á öruggan hátt og aðgangur er einfaldur og þægilegur með símanum; NFC snertilaus eða QR kóða skönnun. Sjá nánar hér. 

Gengur beint inn
Hliðið opnar og notkunin er sjálfkrafa skráð á reikninginn þinn.

Mætir í sundlaugina
Þú opnar appið á símanum þínum við innganginn

Heimsókn á endurvinnslustöð

Heimsókn á endurvinnslustöðina er nú straumlínulagað ferli. Bílnúmerin eru skráð og íbúar geta verið með kvóta eða greitt jafnóðum fyrir greiðsluskyldan úrgang í gegnum Möndlu. Sjá nánar hér. 

Keyrir að stöðinni
Þú keyrir að inngangi endurvinnslustöðvarinnar.
​ Auðkenning við inngang 
Myndavél greinir bílnúmerið sem er tengt við reikninginn þinn. ​


Vigtun og flokkun
Flokkur úrgangs er valinn á snertiskjá og bíllinn er vigtaður. 

Útvigtun og uppgjör ​
Þegar þú keyrir út er bíllinn vigtaður aftur og sjálfvirk skuldfærsla skráð.


​ Ekkert stress 
Leggðu í stæðið og njóttu heimsóknarinnar; engin þörf á að hafa samskipti við gamaldags greiðsluvél.

Bílastæði

Bílastæði eru nú samþætt við VENDRAL sem getur stýrt aðgengi með bílnúmeralestri, kortalestri og MÖNDLU appinu. Sjá nánar hér. 

Komið að bílastæði
Myndavélin greinir númeraplötuna þína, hliðið lyftist og komutíminn þinn er skráður.

Aðgangshliðið man eftir mér
Við útakstur er bílnúmerið þekkt. Kerfið reiknar sjálfkrafa út gjaldið og skuldfærir með tengdri greiðsluleið og sendir kvittun samstundis.