Dæmisaga: Hið íslenska reðasafn
Skilvirkni með lausnum Tæknivits
gestir árlega
erlendir ferðamenn
sem lausn Tæknivits hefur verið í rekstri
samþættar söluleiðir
Hið íslenska reðasafn
Skilvirkni með lausnum TÆKNIVITS
Hið íslenska reðasafn (The Icelandic Phallological Museum) er eitt vinsælasta safn Íslands með yfir 100.000 gesti árlega og hefur vöxturinn verið ævintýralegur síðustu ár. Um 99% þeirra eru erlendir ferðamenn, sem gerir rekstrarflæði og skilvirkni sérstaklega mikilvæga.
Safnið hefur nú í fimm ár notað heildstæða safnalausn TÆKNIVITS, sem felur í sér bæði sjálfvirk aðgangshlið og öflugan bakenda sem sér um miðagerð og dreifingu í rauntíma eða í lotum. Þannig eru öll miðakaup – hvort sem þau fara fram á netinu, í gegnum bokun.io eða á staðnum með afgreiðslukerfinu frá Regla – samþætt í einu kerfi.
Helsti ávinningur
- Aukin skilvirkni: Sjálfvirk aðgangshlið og samræmdir rafrænir miðar hraða öllu aðgengi.
- Betri yfirsýn: Rauntímayfirlit gefur stjórnendum nákvæmar upplýsingar um sölu og aðsókn.
- Sveigjanlegar söluleiðir: Regla POS, Bókun.io og aðrar bókunarsíður – án aukinnar flækju.
- Reynsla og áreiðanleiki: Kerfið hefur reynst öruggt og stöðugt í sex ár, á háannatímum jafnt sem utan.
- Íslensk þróun: Auðvelt að sníða kerfið að sérþörfum og samþætta við önnur kerfi.
Niðurstaða
Með lausn TÆKNIVITS hefur Hið íslenska reðasafn tekið stórt stökk inn í framtíðina. Safnið getur nú tekið á móti fjölda gesta á skilvirkari hátt, aukið tekjur með fjölbreyttum söluleiðum og tryggt gestum hnökralausa upplifun.