Starfsfólk Tæknivits hefur mikla reynslu í öllu er lýtur að sjálfvirkri afgreiðslu, þ.e. ómannaðri afgreiðslu þar sem viðskiptavinur afgreiðir sig sjálfur.


Aðstæður og þarfir eru mismunandi. Þar kemur sérfræðiþekking okkar að góðu gagni.


Ráðgjöf Tæknivits:

  • Þarfagreinum verkefnið í samstarfi við viðskiptavin
  • Komum með tillögur að lausn
  • Útvegum allan búnað sem þarf
  • Tökum að okkur uppsetningu
  • Sjáum um rekstur lausnarinnar

Þarfagreining:
Í samstarfi við þig förum við yfir verkefnið, hverskonar afgreiðslu er þörf (t.d. er verið að greiða á staðnum eða er annarskonar afgreiðsla?), hvernig aðstæður eru og hvernig hugmyndir þínar eru.


Tillögur að lausn:
Við komum með eina eða fleiri tillögur að lausn fyrir þitt verkefni.


Búnaður:
Útvegum allan búnað sem þarf í þína lausn.


Uppsetning:
Setjum upp búnað og innleiðum á þína lausn.


Rekstur:
Allur búnaður þarf sitt utanumhald til lengri tíma. Við getum séð um það. Útvegum einnig allan búnað sem þarf til rekstur á afgreiðslulausnum, svo sem: Miða, posa, pappír í prentara, kort, tölvu- og tæknibúnað.