Tamtron á Íslandi – Vigtun sem drífur reksturinn áfram
Tæknivit er stoltur samstarfsaðili Tamtron Group á Íslandi. Við bjóðum háþróaðar vigtarlausnir sem auka nákvæmni, framleiðni og hagkvæmni í þínum rekstri.
Skilvirkni í hverri hleðslu
Tamtron Group er leiðandi í heiminum á sviði stafrænna vigtunarlausna. Tæknivit færir þér þessa háþróuðu tækni, sem auðveldar gagnasöfnun og eykur nákvæmni í vigtun, hvort sem um ræðir framleiðslu, efnisvinnslu, flutninga eða endurvinnslu. Með vigt frá Tamtron færðu nákvæma yfirsýn og lágmarkar sóun.
Lyftara- og kranavogir
Einföld og fljótleg vigtun beint á lyftara, krana eða uppskipunarbúnað. Tryggir nákvæmni við móttöku eða afhendingu vöru án þess að tefja ferlið.
Hjólaskóflu- og gröfuvogir
Hámarkaðu nýtingu vinnuvéla með því að vigta á ferð. Kerfið mælir þyngdina í hvert skipti sem skóflan er fyllt, án þess að stöðva vinnsluna.
Vörubíla- og vagnavogir
Við bjóðum vigtarbúnað á vörubíla og eftirvagna (onboard scaling) jafnt sem stakar vigtarbrýr, sem tryggir nákvæma gjaldtöku og kemur í veg fyrir yfirhleðslu.
Sérlausnir og samþætting
Hvort sem um ræðir færibönd, tanka eða sérhæfð iðnaðartæki, þá getum við komið vigtarbúnaði fyrir.
Snjöll gagnastjórnun með Tamtron Cloud
Allar Tamtron vigtarlausnir tengjast Tamtron Cloud (One Cloud, WNexus eða mScales). Þetta þýðir að gögnin streyma í rauntíma úr vinnuvélinni á skrifstofuna eða til viðskiptavina. Kerfið býður upp á fulla yfirsýn yfir framleiðni, auðveldar reikningagerð og birgðastýringu með skilvirkum hætti. Auðvelt er að samþátta beint við bókhaldskerfið þitt eða í gegnum Vitvog, vigtunarkerfi Tæknivits,
Reynsla Tæknivits skiptir sköpum
Við hjá Tækniviti höfum áratuga reynslu í sölu og þjónustu á vigtarbúnaði á Ísland og margir af stærstu notendum á þessu sviði eru viðskiptavinir okkar.
Við skiljum íslenskar aðstæður og krefjandi vinnuumhverfi. Þessi reynsla, ásamt háþróaðri tækni Tamtron, gerir samþættingu við íslensk upplýsingakerfi og innviði auðvelda og áfallalausa. Við bjóðum þér trausta ráðgjöf, uppsetningu og eftirfylgni.
Viltu auka nákvæmni og skilvirkni?
Við hjálpum þér að finna réttu vigtarlausnina fyrir þinn rekstur, hvort sem það er stök vigt eða heildarlausn tengd skýinu.