Sérsniðið að móttöku sorps:

  • Inn- og útvigtun
  • Hægt að skrá margar upplýsingar t.d:
    • Hvernig farmur
    • Hver flytur farminn
    • Hver greiðir
    • Þyngd
    • Tímasetningar
  • Flokkun og skráning
  • Tengingar við lagarkerfi
  • Tengingar við bókhaldskerfi
  • Auðvelt að laga að mismunandi þörfum

Íslenskar lausnir í þróun í mörg ár:

Tæknivit hefur þróað lausnir fyrir sorpmóttöku í fjölda ára.


Á meðal viðskiptavina okkar er Sorpa sem rekur mjög umfangsmikið vogarkerfi í móttökustöð sinni í Gufunesi og á urðunarstað í Álfsnesi. Tæknivit hefur á að skipa starfsfólki sem hefur þjónustað og byggt upp afgreiðslukerfið allt frá gangsetningu Sorpu 1991.